Desemberuppbót 2013

Eining-Iðja minnir félagsmenn sína á, að þeir eiga rétt á að fá greidda desemberuppbót samkvæmt kjarasamningum. Upphæðin er mismunandi eftir samningum og við hvaða tímabil er miðað til skilgreiningar á fullu starfi. Uppbótina skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof.

Upphæð desemberuppbótar samkvæmt kjarasamningi við ríkið og samkvæmt kjarasamningum á almennum vinnumarkaði er kr. 52.100, miðað við 100% starfshlutfall. Starfsmenn hjá ríkinu eiga að fá desemberuppbót greidda 1. desember og starfsmenn á almennum vinnumarkaði eigi síðar en 15. desember.

Upphæð desemberuppbótar samkvæmt kjarasamningi við launanefnd sveitarfélaga er kr. 80.700, miðað við 100% starfshlutfall. Starfsmenn sveitarfélaga eiga að fá sína desemberuppbót greidda í desember, skv. kjarasamningi.

Hér má finna töflur sem sýna upphæð desemberuppbótar miðað við starfshlutfall og starfstíma.