Desemberuppbót 2012

Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsmönnum sínum desemberuppbót í byrjun desember ár hvert. Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða t.a.m. starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Desemberuppbót greiðist sem eingreiðsla, er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Hér að neðan gefur að líta upphæðir desemberuppbótar fyrir árið 2012 ásamt upplýsingum um rétt til desemberuppbótar skv. þeim kjarasamningum sem heyra undir SGS.

Samningur SGS við SA kr. 50.500
Samningur SGS við sveitarfélögin kr. 78.200
Samningur SGS við ríkið kr. 50.500
Veitingasamningur SGS og SA kr. 50.500
Samningur SGS og Landssambands Smábátaeigenda kr. 50.500
Samningur SGS og Bændasamtaka Íslands kr. 50.500
Samningur SGS f.h. aðildarfélaga og Landsvirkjunar kr. 85.672

Með því að smella á línurnar hér fyrir neðan má sjá töflu miðað við viðkomandi samning yfir upphæð desemberorlofsgreiðslu miðað við starfshlutfall og starfstíma.

Samningar á almennum markaði
Samningar við ríkisstofnanir
Samningar við sveitarfélög

Samningur SGS við SA (almennur vinnumarkaður)
Fullt ársstarf telst í þessu sambandi 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof. Uppbótin greiðist eigi síðar en 15. desember ár hvert, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi fyrstu viku í desember. Heimilt er með samkomulagi við starfsmann að uppgjörstímabil sé frá 1. desember til 30. nóvember ár hvert í stað almanaksárs.

Ákvæði þessi eiga einnig við um samninga SGS við Landssambands Smábátaeigenda, Bændasamtök Íslands og Landsvirkjun sem og samning SGS við SA vegna veitinga-, gisti-, þjónustu- og greiðasölustaða og hliðstæðrar starfsemi.

Samningur SGS við sveitarfélögin
Starfsmaður í fullu starfi fær greidda desemberuppbót (persónuuppbót) 1. desember ár hvert. Með fullu starfi er átt við 100% starf tímabilið 1. janúar til 30. nóvember sama ár. Hafi starfsmaður gegnt hlutastarfi eða starfað hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall og/eða starfstíma, þó þannig að hann hafi starfað samfellt a.m.k. frá 1. september það ár. Starfsmaður sem lætur af störfum á árinu, en hafði þá starfað samfellt í a.m.k. 6 mánuði skal einnig fá greidda desemberuppbót miðað við starfstíma og starfshlutfall á árinu. Hlutfall skv. þessari málsgrein er reiknað sem hlutfall af fullri vinnu (100%) í 12 mánuði á almanaksárinu af síðast gildandi desemberuppbót.

Samningur SGS við ríkið
Starfsmaður sem er við störf í fyrstu viku nóvembermánaðar skal fá greidda desemberuppbót 1. desember ár hvert miðað við fullt starf tímabilið 1. janúar til 31. október. Desemberuppbót er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamningsins. Á desemberuppbót reiknast ekki orlofsfé. Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall á framangreindu tímabili. Á sama hátt skal einnig starfsmaður sem látið hefur af starfi en starfað hefur samfellt í a.m.k. 3 mánuði (13 vikur) á árinu, fá greidda desemberuppbót, miðað við starfstíma og starfshlutfall. Sama gildir þótt starfsmaður sé frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu stofnunar lýkur eða í allt að 6 mánuði vegna fæðingarorlofs.

Frekari upplýsingar um desemberuppbót er að finna í viðkomandi samningum.

Verði starfsfólks þess á áskynja að greiðslum desemberuppbótar sé óbótavant er það hvatt til þess að hafa samband félagið.