Dalvík - skrifstofan er flutt

Húsið var merkt sl. föstudag
Húsið var merkt sl. föstudag

Í dag opnaði félagið nýja skrifstofu á Dalvík, en hún er í Hafnarbraut 5. Opnunartími verður óbreyttur frá því sem var.

Freydís, starfsmaður Einingar-Iðju á Dalvík, var mjög ánægð með að vera flutt þegar tíðindamaður heimasíðunnar heyrði í henni rétt áðan. Hún sagði að það væri búið að vera gestkvæmt á nýju skrifstofunni í morgun og að fleiri væru búnir að boða komu sína í dag.

Föstudaginn 13. desember nk. verður formleg opnun, en þá verður opið hús á milli kl. 15 og 18. Þá geta allir kíkt á nýju skrifstofuna, fengið sér smá veitingar og hitt starfsmenn félagsins og Virk ráðgjafa. Á svæðinu verða einnig starfsmenn frá Pacta og Enor og er um að gera að forvitnast um þeirra starfsemi í leiðinni.

Þeir sem mæta geta tekið þátt í happdrætti. Það eina sem þarf að gera er að rita nafn sitt og símanúmer á blað og setja blaðið í pott. Úr pottinum verða dregin í lok dags nöfn nokkurra heppinna vinningshafa og verður haft samband við þá strax að drætti loknum Í verðlaun verða nokkrir skemmtilegir vinningar en hulunni af þeim verður ekki svipt fyrr en 13. desember.