Nýlega auglýsti félagið eftir þjónustufulltrúa á Dalvík og rann umsóknarfrestur út í gær. Níu einstaklingar sóttu um og er Capacent nú að fara yfir umsóknirnar, en fyrirtækið sér um ráðningarferlið. Nýr starfsmaður mun hefja störf á skrifstofunni á Dalvík þann 1. desember nk.