Dalvík: Formleg opnun á morgun

Skrifstofan er nú í Hafnarbraut 5
Skrifstofan er nú í Hafnarbraut 5

Í byrjun desember fluttir skrifstofa félagsins á Dalvík í Hafnarbraut 5. Formleg opnun hennar verður á morgun, föstudaginn 13. desember, milli kl. 15 og 18. Þá geta allir kíkt á nýju skrifstofuna, fengið sér smá veitingar og hitt starfsmenn félagsins og Virk ráðgjafa. Á svæðinu verða einnig starfsmenn frá Pacta og Enor og er um að gera að forvitnast um þeirra starfsemi í leiðinni.

Þeir sem mæta geta tekið þátt í happdrætti. Það eina sem þarf að gera er að rita nafn sitt og símanúmer á blað og setja blaðið í pott. Úr pottinum verða dregin í lok dags nöfn nokkurra heppinna vinningshafa og verður haft samband við þá strax að drætti loknum Í verðlaun verða nokkrir skemmtilegir vinningar en hulunni af þeim verður ekki svipt fyrr en 13. desember.