Dagsferðin 2015

Úr ferðinni í fyrra
Úr ferðinni í fyrra

Eins dags ferð fyrir aldraða Einingar-Iðjufélaga verður farin 22. júní nk. 

Lagt verður af stað frá Alþýðuhúsinu á Akureyri kl. 9:00. Farið verður austur í Kelduhverfi og hádegisverður borðaður í Skúlagarði. Þaðan verður farið að Dettifossi og svo í Mývatnssveit þar sem verður drukkið kaffi í Hótel Reynihlíð. Að því loknu verður ekið til Akureyrar á ný.

Ferðin kostar 6.000 krónur á mann, borgað í rútunni.

Skráning og allar nánari upplýsingar um ferðatilhögun má fá á skrifstofu félagsins á Akureyri, Skipagötu 14, og í síma 460 3600. Skráning stendur yfir til 18. júní nk.