Dagsferð fyrir aldraða félagsmenn

Eins dags ferð fyrir aldraða Einingar-Iðjufélaga verður farin fimmtudaginn 21. júní 2018.

Farið verður út Eyjafjörð til Siglufjarðar, þaðan verður farið til Sauðárkróks og að lokum heim um Öxnadalsheiði. Margir merkilegir staðir verða heimsóttir, hádegismatur snæddur á Siglufirði og í Skagafirði verður drukkið kaffi.

Lagt af stað frá Alþýðuhúsinu á Akureyri kl. 9:00

Ferðin kostar 6.000 krónur á mann.

Skráning í ferðina er á skrifstofum félagsins og í síma 460 3600 til 20. júní nk.