Dagbókin góða

Stuttu fyrir jólin var vasadagbók félagsins fyrir árið 2019 send til allra trúnaðarmanna og annarra sem gegna trúnaðarstörfum fyrir félagið.

Dagbókin er góð til að setja t.d. inn ábendingar um fundi og annað á vegum félagsins. Því er vert að minnast á að aðalfundir deilda Einingar-Iðju fara fram mánudaginn 11. febrúar 2019 og að alfundur félagsins verður fimmtudaginn 21. mars 2019. Gott er að taka þessa daga frá og setja áminningu um þá í bókina.

Félagsmenn sem ekki fá bók þurfa ekki að örvænta. Við munum að sjálfsögðu minna á fundina er nær dregur.