Dagbókin farin í póst

Í gær var vasadagbók félagsins fyrir árið 2018 sett í póst. Á hverju ári er slík bók send til allra trúnaðarmanna og annarra sem gegna trúnaðarstörfum fyrir félagið.

Dagbókin er góð til að setja t.d. inn ábendingar um fundi og annað á vegum félagsins. Því er vert að minnast á að aðalfundir deilda Einingar-Iðju fara fram mánudaginn 12. febrúar 2018 og að alfundur félagsins verður fimmtudaginn 22. mars 2018. Gott er að taka þessa daga frá og setja áminningu um þá í bókina um leið og hún laumast inn um bréfalúguna.

Félagsmenn sem ekki fá bók þurfa ekki að örvænta. Við munum að sjálfsögðu minna á fundina er nær dregur.