Dagbókin farin í póst

Fyrr í dag var vasadagbók félagsins fyrir árið 2016 sett í póst. Á hverju ári er slík bók send til allra trúnaðarmanna og annarra sem gegna trúnaðarstörfum fyrir félagið.

Dagbókin er góð til að setja t.d. inn ábendingar um fundi og annað á vegum félagsins. Því er vert að minnast á að aðalfundir deilda Einingar-Iðju fara fram miðvikudaginn 17. febrúar 2016 og að alfundur félagsins verður þriðjudaginn 12. apríl 2016. Gott er að taka þessa daga frá og setja áminningu um þá í bókina um leið og hún laumast inn um bréfalúguna.

Félagsmenn sem ekki fá bók þurfa ekki að örvænta. Við munnum minna á fundina er nær dregur.