DAGBÓK VIRK 2017 KOMIN ÚT

Á heimasíðu VIRK segir að dagbók VIRK 2017 sé komin út. Hún er komin til ráðgjafa um allt land þar sem einstaklingar í þjónustu geta nálgast hana.

Dagbókin, sem nú er gefinn út i sjötta sinn, er hönnuð af Kristínu Maríu Ingimarsdóttur, ritstýrt af Eysteini Eyjólfssyni og prentuð í prentsmiðju Guðjóns Ó. 

Dagbókin hefur svipað yfirbragð og fyrri dagbækur VIRK og er sett upp til að auðvelda þeim sem hana nota að skrásetja líðan sína og áfangana sem þeir ná í starfsendurhæfingu sinni.

Einstaklingar í þjónustu VIRK eru hvattir til þess að nota dagbókina til auka starfsgetu sína og lífsgæði og nýta sér hvernig hún er markvisst byggð upp til að auðvelda markmiðssetningu og til hvatningar einstaklingnum.