Býrð þú yfir minningarbrotum eða áttu myndir?

Eins og áður hefur komið fram þá er Jón Hjaltason sagnfræðingur að rita sögu Einingar-Iðju. Jón byrjaði á verkinu síðastliðið haust og er fyrirhugað að bókin verði gefin út á fyrri parti ársins 2018. Stefnt er á saga félagsins verði í og með atvinnusaga Eyjafjarðarsvæðisins á þessu tímabili, saga samfélagsins og að einhverju leyti saga þjóðar. Þetta er allt samtvinnað þannig að heimildirnar liggja mjög víða.

Ef einhver býr yfir minningarbrotum sem tengjast sögunni þá er sá hinn sami hvattur til að hafa samband við Jón. Hægt er að senda tölvupóst á netfangið jonhjalta@simnet.is eða hringja í síma 862 6515. Sömuleiðis ef einhver á gamlar myndir þá er hægt að senda póst á Þorsteinn á netfangið steini@ein.is eða hringja í síma 460 3600 og biðja um Steina. Gaman væri ef félagið fengi myndir sem ekki hafa verið prentaðar áður, t.d. gamlar tækifærismyndir sem jafnvel sýna óvart það sem á þeim er.