Nýlega framkvæmdi Capacent Gallup könnun um ýmis atriði sem snerta kjör og aðstæður félagsmanna Einingar-Iðju og AFLs starfsgreinafélags. Könnunin var líka happdrættismiði því allir sem tóku þátt gátu unnið veglega vinninga. Nú er búið að draga og voru eftirfarandi númer dregin út.
1. vinningur, kr. 100.000, kom á númerið AFHFXV423
2. vinningur, kr. 50.000, kom á númerið AFR35ZLTY
3. – 6. vinningur, vikudvöl í orlofsíbúðum félaganna utan jóla- og páskatímabils á árinu 2015, komu á númerin AFYNJ8HL6, ENCKV5RZN, AFMLG2JVX og ENVEKCAT5
Í ár var einnig sú nýbreytni að 20 þátttakendur lentu strax í happdrættispotti. Hinir heppnu vinningshafar fengu tilkynningu um það um leið og þeir höfðu lokið við að svara könnuninni, um er að ræða kr. 10.000 inneign á debetkorti sem þeir nálguðust á skrifstofu félagsins á Akureyri.
Eining-Iðja óskar vinningshöfum til hamingju.