Búið að bæta við öðru konfektnámskeiði

Í gær auglýsti félagið konfektnámskeið og nú er það orðið fullt. Því var ákveðið að bæta við öðru námskeiði og verður það mánudaginn 21. nóvember kl. 19:00 í sal félagsins á Akureyri. 

Ekkert námskeiðsgjald - en efniskostnaður er kr. 1.500.

Hámarksfjöldi: 12

Leiðbeinandi: Hulda Einarsdóttir

Skráning á skrifstofum Einingar-Iðju sem fyrst og í síma 460 3600, á venjulegum opnunartíma.