Breyttur skiladagur í desember

Vert er að minna á að skila þarf gögnum til félagsins vegna styrkja úr sjúkrasjóði Einingar-Iðju og fræðslusjóðum í síðasta lagi 22. desember nk. Greiðsla dagpeninga og styrkja vegna desembermánaðar fer fram 30. desember nk. og verður það síðasti greiðsludagur á þessu ári.

Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt í lok janúar 2017.