Vert er að minna félagsmenn aftur á að skila þarf gögnum til félagsins vegna styrkja úr sjúkrasjóði Einingar-Iðju og fræðslusjóðum í síðasta lagi á morgun, þriðjudaginn 22. desember. Greiðsla dagpeninga og styrkja vegna desembermánaðar fer fram 30. desember nk. og verður það síðasti greiðsludagur á þessu ári.
Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt í lok janúar 2016.