Breyttur skiladagur á gögnum í desember

Sjúkrasjóður og fræðslusjóðir Einingar-Iðju

Útborgun 28. desember 2018

Greiðsla dagpeninga og styrkja vegna desembermánaðar fer fram 28. desember nk. og verður það síðasti greiðsludagur á þessu ári.

Skila þarf inn gögnum til félagsins í síðasta lagi 20. desember næstkomandi til að ná þessari útborgun. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt í lok janúar 2019.