Breyting á stjórn félagsins

Stjórnin þakkaði Sigurpáli fyrir góð störf í þágu félagsins og fyrir samstarfið og færði honum blómv…
Stjórnin þakkaði Sigurpáli fyrir góð störf í þágu félagsins og fyrir samstarfið og færði honum blómvönd.

Í lok fundar í aðalstjórn félagsins í gær tilkynnti Sigurpáll Gunnarsson um afsögn sína úr stjórn félagsins frá og með þeim tíma þar sem hann er að skipta um starfsvettvang utan starfssviðs Einingar-Iðju. 

Sigurpáll var kosinn í stjórn Einingar-Iðju á aðalfundi 2018 og var þá yngsti einstaklingurinn frá upphafi til að taka sæti í stjórn félagsins. 

Stjórnin þakkaði honum fyrir góð störf í þágu félagsins og fyrir samstarfið og færði honum blómvönd.

Á næsta aðalfundi Einingar-Iðju verður því kosið um nýjan meðstjórnanda til eins árs.