Breyting á aksturgjaldi og dagpeningagreiðslum

Noti starfsmaður eigin bifreið í þágu atvinnurekanda ber að greiða fyrir notkun samkvæmt kílómetragjaldi sé ekki samið um annað endurgjald. Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:

  • Fyrstu 10.000 km, kr. 120,00 pr. km
  • Frá 10.000 til 20.000 km, kr. 108,00 pr. km
  • Umfram 20.000 km, kr. 96,00 pr. km
Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið. Akstursgjald þetta gildir frá og með 1. október 2021. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2020.
 

Dagpeningar 

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

1. Gisting og fæði í einn sólarhring  kr. 30.700 
2. Gisting í einn sólarhring   kr. 17.700
3. Fæði hvern heilan dg, minnst 10 tíma ferðalag    kr. 13.000
4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag  kr. 6.500


Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. október 2021. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2021 dags. 25. maí 2021.

Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Viðmið ferðakostnaðarnefndar eru hámarksupphæðir vegna greiðslu slíkra reikninga.