Breyting á aksturgjaldi

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:

Almennt gjald

  • Fyrstu 10.000 km, kr. 110,00 pr. km
  • Frá 10.000 til 20.000 km, kr. 99,00 pr. km
  • Umfram 20.000 km, kr. 88,00 pr. km
Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.
 
Akstursgjald þetta gildir frá og  með 1. desember 2015. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2013 dagsett 24. maí 2013.
 
Vakin er athygli á því að auglýsingar ferðakostnaðarnefndar eru birtar  á vefsíðu fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Veffangið er www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostnadur. Þar er auk þess að finna reglur nefndarinnar um greiðslu dagpeninga erlendis og greinargerð um forsendur útreikninga akstursgjalds og dagpeninga.