Nú er í gangi trúnaðarmannanámaskeið í sal félagsins á Akureyri sem trúnaðarmenn frá Einingu-Iðju og nokkrum öðrum félögum sitja. Meðal þeirra sem námskeiðið situr er Sigríður Þ. Jósepsdóttir, annar trúnaðarmaður félagsins hjá Samherja á Dalvík, en hún ákvað að færa körlunum á skrifstofunni, þeim Birni, Þorsteini og Ásgrími blóm í tilefni bóndadagsins. Auðvitað var Heimir hjá Byggiðn ekki skilinn eftir útundan.
Takk kærlega fyrir okkur.