Bókagjöf til bókasafna og skóla á svæðinu

Stjórn félagsins ákvað á fundi nýlega að færa öllum bókasöfnum og skólum á félagssvæðinu sögu ASÍ að gjöf. Nýlega efndi félagið til samkomu þar sem 33 skólar og bókasöfn fengu boð um að mæta á. Þar fór fram afhending sögu ASÍ sem kom út á 97 ára afmælisdegi ASÍ fyrir stuttu. Þeir sem komust ekki fá bækurnar að sjálfsögðu sendar til sín. Verkið, sem er í tveimur bindum og afar veglegt, var í smíðum undanfarin ár en höfundur þess er Sumarliði Ísleifsson sagnfræðingur.

Í byrjun febrúar stóð félagið fyrir málþingi um lífskjör iðnverkafólks á Akureyri á liðinni öld. Fjölmörg fróðleg erindi voru flutt á þinginu og töluðu margir þar um hve sagan væri merkileg. Innan Einingar-Iðju var búið að ræða um nauðsyn þess að glata ekki sögunni og eitthvað var búið að ræða um söguritun. Stjórn félagsins fjallaði um þetta á vinnudegi nýlega og eins var fjallað um málið á fræðsludegi félagsins. Nú hefur verið ákveðið að á aðalfundi Einingar-Iðju, sem verður þann 16. apríl nk.,verði lögð fram tillaga um ritun á sögu félagsins. Það verður því í höndum félagsmana að ákveða hvort saga verkalýðs/verkalýðsfélaga á félagssvæðinu er standa að Einingu-Iðju frá upphafi til vorra daga verði sett á prent.

Nánar um sögu ASÍ
Verkið hefur átt sér langan aðdraganda og mikil og vönduð undirbúningsvinna hefur verið unnin sem skilar sér í metnaðarfullu og glæsilegu riti um íslenskt samfélag og sögu, frá fyrstu tilraunum til stofnunar alþýðusamtaka gegnum hörð stéttaátök kreppuáranna, samfélagsbreytingar á eftirstríðsárum, alþýðutryggingar, húsnæðismál, jafnréttismál, lífeyrisréttindi, menntamál, alþjóðamál og ótalmargt annað sem íslensk alþýðusamtök komu að, og allt til nútímans. Fyrra bindið ber undirtitilinn Í samtök og nær yfir tímabilið 1916-1960 og hið síðara kallast Til velferðar og nær frá 1960-2010.

Í bókunum er að finna mörg hundruð myndir sem tengjast íslenskri verkalýðsbaráttu og alþýðusamtökum og var víða leitað fanga við öflun mynda, enda er þar margt afar forvitnilegt að sjá. Einnig eru í bókinni skýringarmyndir og töflur sem segja sögu þróunar í kjaramálum og á mörgum öðrum sviðum, listar yfir stór og smá aðildarfélög ASÍ frá upphafi, litmyndir af öllum þekktum 1. maí-merkjum samtakanna og margt annað efni sem styður og skreytir frásögnina.

Bækurnar eru samtals nær 800 blaðsíður í stóru broti og eru bæði fáanlegar í vandaðri öskju og einnig án öskju.