Næsta mánudag hefst boðað verkfall framhaldsskólakennara ef samningar takast ekki fyrir þann tíma. Rétt er að benda á að yfirvofandi verkfall tekur aðeins til þeirra sem eru félagar í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum. Verkfallið tekur ekki húsvarða, starfsfólks í mötuneytum, starfsfólks við ræstingar eða annarra sem vinna almenn störf í framhaldsskólum. Þeim er þó óheimilt að ganga í störf kennara.
Félagsmenn Einingar-Iðju sem starfa innan framhaldsskólanna hafa mætingarskyldu og vinnuskyldu í verkfalli kennara. Félagsmönnum ber að mæta á hefðbundnum tíma og sinna sínum daglegu verkefnum eins og ekkert hafi í skorist eins og þeim er framast unnt. Félagsmenn Einingar-Iðju fá líka óskert laun í verkfalli kennara. Samkvæmt flestum ráðningarsamningum geta stjórnendur falið starfsfólki tilfallandi verkefni og skal starfsfólk ganga í þau verk sem óskað er, þ.e. ef þau ganga ekki inn á verksvið kennara eða stjórnenda í verkfalli. Því er sennilegt að ef til verkfalls kemur verði tækifærið nýtt til að gera hreint eða sinna öðrum störfum sem ekki hefur unnist tækifæri til.