Bjarg lækkar áfram leigu

Skrifað hefur verið undir viljayfirlýsingu um fjármögnun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) til íbúðafélagsins Bjargs. Í kjölfarið hyggst Bjarg lækka leigu stórs hóps leigjenda sinna frá og með 1. september nk. Lækkunin nemur allt að 35.000 kr. á mánuði.

Um er að ræða hagstæða nýja langtímafjármögnun á lánum félagsins hjá HMS í kjölfar þess að niðurstaða náðist í ríkisstjórn um framtíðarfyrirkomulag lánveitinga stofnunarinnar á samfélagslegum forsendum til byggingar og kaupa á íbúðum.

Björn Traustason, framkvæmdarstjóri Bjargs sagði að þessu tilefni að ástæða lækkuninarinnar væru bætt kjör á lánsfé og að allir leigjendur Bjargs fái lækkun; „svona virkar óhagnaðardrifið leigufélag eins og okkar, að ef okkar kostnaður lækkar þá njóta leigutakarnir þess óháð því hvaða upphæð kemur fram í leigusamningnum.“

Undirritunin fór fram við Móaveg í Grafarvogi, þar sem fyrsta íbúð Bjargs var afhent fyrir tveim árum, og voru það félags- og barnamálaráðherra, framkvæmdastjóri Bjargs leigufélags, og aðstoðarforstjóri HMS sem undirrituðu viljayfirlýsinguna.

Bjarg íbúðafélag á og leigir út m.a. 31 íbúð í húsi sem stendur við Gudmannshaga á Akureyri.

Nánar má fræðast um Bjarg íbúðafélag hér