Bjarg íbúðafélag - framkvæmdir hafnar á Akureyri

Fyrir helgi hófust framkvæmdir við Gudmannshaga 2 á Akureyri þar sem fyrirtækið Lækjarsel ehf. mun byggja hús fyrir Bjarg íbúðafélag. Byggingin er fjöleignarhús og er að litlum hluta tveggja hæða með stigahúsi en aðallega þriggja hæða með lyftu og stigahúsi. Í húsinu verða 31 íbúð, þar af 4 í 2ja hæða kálfi sem verða afhentar til Bjargs í ágúst 2020 síðan verða 27 íbúðir afhentar í nóvember 2020. Íbúðirnar eru 2ja, 3ja, 4ra og 5 herbergja og eru í minni kantinum.

  • Arkitektar eru Tendra arkitektar
  • Verkfræðingar eru AVH á Akureyri
  • Rafhönnun er Raftákn
  • Lóðarhönnun er Teiknistofan Storð ehf.

Bjarg íbúðafélag er húsnæðissjálfseignarstofnun stofnuð af ASÍ og BSRB. Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Um er að ræða svokölluð leiguheimili að norrænni fyrirmynd, "Almene boliger". Leiðarljós félagsins er að veita leigutökum öruggt húsnæði til langs tíma.

Opnað verður fyrir umsóknir þegar nær dregur afhendingu. Á heimasíðu Bjargs má finna ýmsar upplýsingar um félagið, m.a. hvernig á að sækja um íbúð og eins má finna þar fjölda svara við ýmsum spurningum sem geta komið upp ef þú ert að hugsa um að sækja um íbúð hjá Bjargi .