Bjarg fagnar áhuga á verkefnum félagsins

Bjarg íbúðafélag fagnar áhuga innlendra framleiðenda á því að vinna með félaginu. Félagið semur um uppbyggingu leiguíbúða í alverktöku og mun aðalverktaki eftir atvikum leita eftir tilboðum í ákveðna verkþætti. Þetta kemur fram á heimasíðu ASÍ.

Eins og fram hefur komið hefur verið gengið til samninga við IKEA um innréttingar í verk sem nú eru komin af stað. Samningurinn var gerður að undangengnu útboðsferli sem ÍAV stóð að fyrir síðla árs 2017. Nokkur fjöldi fyrirtækja tók þátt í útboðinu en ákveðið var að ganga að hagstæðasta tilboðinu sem kom frá IKEA.

IKEA á Íslandi er 350 manna vinnustaður með skýra umhverfis- og jafnlaunastefnu. Þá hefur fyrirtækið fengið viðurkenningu VR sem fyrirmyndarfyrirtæki. Innréttingaverkefnið skapar mikla vinnu hérlendis en stærsti hluti þess er unnin innanlands.

Samkomulag Bjargs við IKEA er án skuldbindingar en félagið hefur lýst yfir vilja til áframhaldandi samstarfs um lausnir IKEA. Það skapar hagræði í rekstri félagsins að vera með staðlaðar lausnir þegar kemur að viðhaldi.

Samstarfið fellst einnig í þjónustu við leigutaka Bjargs. Bjarg skilar íbúðum með lágmarks innréttingum og mikilvægt að leigutakar hafa aðgang að viðbótum á viðráðanlegu verði. IKEA mun útbúa sérstakan bækling fyrir leigutaka Bjargs þar sem þeir geta, þegar þeim hentar, valið viðbætur fyrir íbúðir.

Markmið Bjargs er að leigja félagsmönnum ASÍ og BSRB íbúðir á viðráðanlegu verði. Til að ná því markmiði þarf að nýta hagstæðustu lausnir sem finnast hverju sinni með tilliti til verðs og þjónustu.

Bjarg, sem var stofnað af ASÍ og BSRB, leggur mikla áherslu á að þeir sem samið er við um aðföng eða framkvæmdir virði kjarasamninga launafólks og gæti að réttindum þeirra. Það er meðal annars tryggt með ákvæði um keðjuábyrgð í samningum Bjargs við verktaka.

Nánar um Bjarg má lesa hér