betrivinnutimi.is - betri vinnutími fyrir vaktavinnufólk!

Þessi frétt eða fróðleikur er af kynningarvefnum betrivinnutimi.is þar sem farið er yfir mögulegar útfærslur á styttingu vinnutíma dagvinnufólks og þær breytingar sem verða á vinnufyrirkomulagi vaktavinnufólks hjá ríki og sveitarfélögum. 

Þann 1. maí sl. bar að fagna tvöfalt, annars vegar baráttudegi verkafólks og hins vegar betri vinnutíma fyrir vaktavinnufólk. 

Stigið hefur verið eitt stærsta skref í breytingum á vinnutíma vaktavinnufólks í hálfa öld. Vinnuvika starfsfólks í vaktavinnu, í fullu starfi hjá opinberum launagreiðendum, mun styttast um 4 klst. á viku að lágmarki. Þeir sem vinna þyngstu vaktirnar geta stytt vinnutíma sinn um allt að 8 klst. á viku. Með þessum breytingum er komið til móts við þá kröfu launafólks að 80% vaktavinna jafngildi 100% í dagvinnu vegna sjónarmiða um öryggi, heilsu og jafnvægi vinnu og einkalífs.

Samfélagslegur ávinningur breytinganna er margþættur
Ávinningurinn skilar sér til starfsfólks og fjölskyldna þeirra, launagreiðenda og í auknum gæðum opinberrar þjónustu. Mestu um vert er sá samfélagslegi ávinningur sem felst í  auknu öryggi, bættri heilsu og meira jafnvægi vinnu og einkalífs, en það eru einmitt leiðarljós verkefnisins um betri vinnutíma í vaktavinnu.

Kerfisbreytingin sem felst í innleiðingu betri vinnutíma í vaktavinnu er í senn tímamótabreyting og eitt stærsta breytingarverkefni sem launafólk og launagreiðendur hafa sameinast um að fara í til margra ára. Það er mikið tilhlökkunarefni að fylgjast með þeim samfélagslega ávinningi sem betri vinnutími í vaktavinnu kemur til með að hafa í för með sér þegar fram líða stundir, bæði fyrir starfsfólk og fjölskyldur þeirra sem og á gæði opinberrar þjónustu.

Vegferðin er rétt að hefjast. Með samvinnu, samtali og samráði mun betri vinnutími lifa!