Beint streymi frá mansalsráðstefnu

Mikill áhugi er á mansalsráðstefnunni sem Starfsgreinasambandið, lögreglan og Reykjavíkurborg standa fyrir í dag. Ráðstefnan hefst kl. 8:30 en því miður komast ekki allir að sem vilja og er löngu orðið fullbókað. Ráðstefnunni verður hins vegar streymt á Facebook-síðu Starfsgreinasambandsins og því geta allir hlýtt á fyrirlestrana sem vilja.