Aukinn jöfnuður lykill að sátt í samfélaginu

Drífa Snædal, forseti ASÍ, með hugleiðingar um jafnrétti og misskiptingu í pistli sínum á alþjóðlegum baráttudegi kvenna.

Til hamingju með baráttudag kvenna. Þetta er dagur þeirra sem telja jafnrétti sé hagur allra og friður skuli ríkja. Baráttan fyrir bættum kjörum kvenna og friði er upphafið að þessum alþjóðlega baráttudegi. Það er því táknrænt að í dag leggur niður störf sú fjölmenna kvennastétt sem vinnur erfið störf á lágum launum, nefnilega hótelþernur. Þessi stétt hefur ekki verið hávær eða frek á athygli hingað til en í dag er hlustað á kröfur þeirra. Þetta er auk þess ein af þeim starfstéttum sem hefur átt mestan þátt í endurreisn okkar eftir hrun. Án hreins líns og ræstinga á hótelum væri lítið um ferðaþjónustu. 

Kvenfrelsisbaráttan hefur nú staðið í nær tvær aldir. Hún hefur risið og hnigið í gegnum tíðina en aldrei lognast út af. Neistinn hefur lifað jafnvel í dýpstu lægðum og þannig hefur okkur miðað fram veginn. En betur má ef duga skal. Margt hefur áunnist og það er ágætt að rifja það upp að rauðsokkurnar börðust fyrir leikskólum handa öllum börnum, frjálsum fóstureyðingum og að kvennastörf væru metin til jafns við karlastörf. Síðar kom baráttan fyrir friðhelgi, þ.e. gegn kynbudnu ofbeldi. 

Árangurinn felst í lagabreytingum, þrýstingi á kerfið að taka mark á konum, réttinum til að ráða yfir eigin líkama og vera metnar að verðleikum. Þegar kerfið tekur ekki mark á konum sem segja frá ofbeldi þá segja þær frá á öðrum vettvangi, jafnvel áratugum síðar. Ef réttur kvenna til þungunarrofs er takmarkaður leita konur annarra leiða eða lifa lífi sem þær ætluðu sér aldrei. Samfélagið verður að hlusta og taka þátt í jafnréttisbaráttunni, annað bíður hættunni heim.

Ef misskiptingu er viðhaldið milli karla og kvenna og á milli stétta brýst það fyrr eða síðar út í átökum á vinnumarkaði og vantrausti á stjórnvöldum. Þar erum við í dag. Til að halda friði á vinnumarkaði er nauðsynlegt að vinna að auknum jöfnuði og jafnrétti. Í dag er ágætis dagur til að rifja það upp og minna sig á.

Góða helgi,
Drífa