Aukið starfshlutfall fyrir fólk í hlutastarfi!

Starfsfólki í vaktavinnu á opinbera markaðinum, sem vinnur hlutastörf, á nú að hafa boðist að hækka við sig starfshlutfall vegna betri vinnutíma í vaktavinnu.

Réttur starfsmanns, í hlutastarfi í vaktavinnu, er að auka við sig starfshlutfall sem nemur styttingu vinnuviku. Stytting vinnuviku nemur öllu jafna um 10% af starfshlutfalli hvers og eins og tekur mið af því að vinnuvikan er að styttast úr 40 stundum í 36 stundir. 

Starfsmaður sem hækkar við sig starfshlutfall á grundvelli styttingar vinnuviku mun öllu jafna vinna færri stundir á mánuði en hann gerir í dag. Ástæða þess er að eftir er að taka mið af vægi vinnuskyldustunda

Ef þú ert vaktavinnustarfsmaður í hlutastarfi og hefur ekki fengið boð um hækkað starfshlutfall er þér bent á að hafa samband við þinn stjórnanda. 

Í kjarasamningum opinberra starfsmanna sem samþykktir voru á vormánuðum 2020 náðist tímamótasamkomulag um styttingu vinnutímans. Breytingar vegna vaktavinnufólks taka gildi 1. maí 2021 en breytingar hjá dagvinnufólki tóku gildi frá 1. janúar 2021. Varðandi dagvinnuna er heimilt að stytta vinnuvikuna um allt að 4 klukkustundir á viku eða úr 40 í 36 virkar stundir. Lágmarksstytting er þó 13 mínútur á dag, eða 65 mínútur á viku. Vinnuvikan fyrir fólk í vaktavinnu styttist úr 40 stundum í 36 virkar stundir á viku, fyrir fullt starf. Frekari stytting í allt að 32 stundir er möguleg og grundvallast á vægi vinnustunda. 

betrivinnutimi.is
Á kynningarvefnum betrivinnutimi.is er farið yfir mögulegar útfærslur á styttingu vinnutíma dagvinnufólks og þær breytingar sem verða á vinnufyrirkomulagi vaktavinnufólks. Á vefnum er einnig leitast við að svara helstu spurningum og veita leiðbeiningar um framkvæmd breytinganna sem eiga að leiða til betri vinnutíma. Þá er einnig að finna svokallaðan vaktareikni sem hægt er að nota til þess að fá betri mynd af því hvaða breytingar nýtt vinnufyrirkomulag getur haft á kjör vaktavinnufólks.