Auka orlofsuppbót til starfsfólks Samherja

Samkvæmt kjarasamningi er orlofsuppbót starfsmanna á almenna vinnumarkaðinum kr. 28.700,-. Fyrir síðustu mánaðarmót fengu starfsmenn Samherja sem vinna í landi tilkynningu þar sem fram kom að fyrirtækið hafi ákveðið að hækka upphæðina um 71.300 og greiða kr. 100.000 til starfsmanna með maí launum. Greiðslan er miðuð við fullt starf í 12 mánuði.