Atvinnuþátttaka mælist 80%

Samkvæmt nýjustu vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar, sem gerð var í desember sl., mældist atvinnuþátttaka hér á landi 80%. Það þýðir að af þeim 183.700 manns sem voru að jafnaði á vinnumarkaði voru 175.800 af þeim starfandi og 7.900 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuleysi mældist því 4,3%. Atvinnuþátttaka Íslendinga hefur minnkað um 0,8% ef miðað er við sama tíma fyrir ári síðan, en atvinnuleysi minnkað um 0,1%.

Lesa má nánar um framkvæmd og aðferð rannsóknarinnar á vef Hagstofunnar