Atvinnuleysi mældist 3,1% á fjórða ársfjórðungi 2015

Á fjórða ársfjórðungi 2015 voru 189.200 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 183.300 starfandi og 5.900 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 81,6%, hlutfall starfandi mældist 79% og atvinnuleysi var 3,1%. Frá fjórða ársfjórðungi 2014 fjölgaði starfandi fólki um 5.300 og hlutfallið jókst um 1,5 prósentustig. Atvinnulausum fækkaði á sama tíma um 1.800 manns og hlutfallið sömuleiðis um eitt prósentustig. Atvinnulausar konur voru 2.100 og var atvinnuleysi á meðal kvenna 2,3%. Atvinnulausir karlar voru 3.800 eða 3,8%. Atvinnuleysi var 3,6% á höfuðborgarsvæðinu en 2.2% utan þess.

Meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku voru 39,7 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 45,5 klst. hjá þeim sem voru í fullu starfi og 22,6 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Heimild: Vinnumarkaður á fjórða ársfjórðungi 2015