Átt þú rétt á orlofsuppbót?

Eining-Iðja vill minna félagsmenn á rétt sinn til að fá greidda orlofsuppbót. Þeir sem starfa á almennum vinnumarkaði eða hjá ríkinu eiga að fá greidda orlofsuppbót þann 1. júní nk. en þeir sem starfa hjá sveitarfélögum þann 1. maí sl. 

Orlofsuppbót hjá þeim sem starfa hjá sveitarfélögum er kr. 39.000 árið 2014, en á almenna markaðinum og hjá ríkinu er hún kr. 39.500. Þetta á við um þá sem eru í 100% starfi.

Með því að smella á línurnar hér fyrir neðan má sjá töflur yfir upphæð orlofsgreiðslu miðað við starfshlutfall og starfstíma.