Atkvæðagreiðslu um nýjan samning við sveitarfélögin lýkur á miðnætti

Eining-Iðja vill minna á að atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning SGS við Samband íslenskra sveitarfélaga lýkur á miðnætti í kvöld og verða niðurstöður atkvæðagreiðslunnar kynntar á morgun. Atkvæðagreiðslan er með rafrænum hætti og eru allir félagsmenn sem starfa eftir samningi SGS við sveitarfélögin á kjörskrá. 

Félagið hvetur alla sem ekki eru búnir að taka þátt að greiða atkvæði. Þín þátttaka skiptir máli.

Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu eða vantar aðstoð við að greiða atkvæði geta komið á einhverja af skrifstofum félagsins á venjulegum opnunartíma.

Til að greiða atkvæði fara félagsmenn inn á heimasíðu Starfsgreinasambandsins og smella á „Kjarasamningar 2015“ á forsíðunni. Þar getur viðkomandi greitt atkvæði með því að nota lykilorð sem hann fær sent í pósti. Allir kosningabærir félagsmenn fá sendan kynningarbækling í pósti í tengslum við atkvæðagreiðsluna, en bæklingurinn inniheldur m.a. lykilorð viðkomandi.