Atkvæðagreiðsla um verkföll hafin

Atkvæðagreiðsla vegna verkfallsboðunarinnar hjá félagsmönnum sem starfa eftir kjarasamingum við Samtök atvinnulifsins hófst kl. 8.00 í morgun og lýkur henni á miðnætti 20. apríl. Atkvæðagreiðslan fer fram á www.sgs.is

Kæru félagar – valdið er ykkar!

Takið afstöðu með því að kjósa - launafólk í landinu þarf á ykkar kröftum að halda

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna

Starfsgreinasambandið (SGS) hefur tilkynnt um víðtækar verkfallsaðgerðir sem bresta munu á í lok þessa mánaðar og í maímánuði, hafi ekki náðst samningar fyrir þann tíma. Um er að ræða harðari og umfangsmeiri aðgerðir en áður höfðu verið kynntar en í stað staðbundinna vinnustöðvana þá hefjast allsherjarverkföll. Aðgerðirnar ná til yfir 10 þúsund félagsmanna aðildarfélaga SGS og munu hafa mikil áhrif á fjölda vinnustaða um land allt.

Ástæðan fyrir þessu fyrirhuguðu hertu verkfallsaðgerðum Starfsgreinasambandsins eru m.a. tilraunir Samtaka atvinnulífsins til að tefja fyrir atkvæðagreiðslum launþegasamtaka og mikill baráttuvilji meðal félagsmanna aðildarfélaga SGS. Upphaflega var áætlað að hefja vinnustöðvanir um miðjan þennan mánuð en vegna úrskurðar Félagsdóms varð að hefja atkvæðagreiðslu um aðgerðirnar upp á nýtt.

Meginkrafan af hálfu SGS hefur verið hækkun grunnlauna sem liggja nú í rúmum 200 þúsund krónum fyrir fulla vinnu og að lágmarkslaun fari þannig upp í 300 þúsund krónur innan þriggja ára. Krafan er sett fram meðal annars í ljósi mikils hagnaðar fyrirtækja og hækkana til hinna hæst launuðu í þjóðfélaginu. 

Skipulag verkfallsaðgerðanna:

30. apríl 2015 - Allsherjar vinnustöðvun frá klukkan 12:00 á hádegi til miðnættis sama dag
6. maí 2015 - Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 6. maí)
7. maí 2015 - Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 7. maí)
19. maí 2015 - Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 19. maí)
20. maí 2015 - Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 20. maí)
26. maí 2015 - Ótímabundin vinnustöðvun hefst á miðnætti aðfaranótt 26. maí 2015