Atkvæðagreiðsla um nýjan samning við SA

Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins verður með rafrænum hætti og fer fram frá kl. 8:00 12. júní til kl. 12:00 22. júní nk. Tilkynna skal niðurstöður atkvæðagreiðslunnar mánudaginn 22. júní nk.

Allir félagsmenn eru á kjörskrá í atkvæðagreiðslunni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu geta kosið á skrifstofum félagsins. Félagsmenn fara inn á heimasíðu Starfsgreinasambandsins, www.sgs.is og smella á „Kjarasamningar 2015“. Þar getur viðkomandi greitt atkvæði með því að nota lykilorðið sem hann fær sent í pósti.

Allir kosningabærir félagsmenn fá kyningarbækling sendan í pósti í tengslum við atkvæðagreiðsluna.