Atkvæðagreiðsla um kjarasamning

Í næstu viku hefst rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning ASÍ við SA. Atkvæðagreiðslan hefst kl. 8 þriðjudaginn 16. febrúar nk. og lýkur 12 á hádegi 24. febrúar.

Það eina sem þú þarft að gera til að greiða atkvæði er að ýta á grænu myndina af kjörkassa sem finna má á forsíðu heimasíðunnar (ATH! ekki á myndina hér til hliðar) . Þar þarf að setja inn lykilorð sem berst með kynningargögnum um samninginn og atkvæðagreiðsluna sem ASÍ sendir frá sér næsta mánudag, 15. febrúar, og ættu að hafa borist öllum sem eru á kjörskrá á tímabilinu 16. - 19. febrúar. 

Þeir félagsmenn sem ekki hafa aðgang að tölvu geta kíkt á skrifstofur félagsins og fengið aðganga að viðeigandi tækjabúnaði og aðstoð ef með þarf. 

Sýnum samstöðu og greiðum atkvæði!