Átakið Vertu á verði gengur vel

Í febrúar sl. hleypti ASÍ og aðildarfélög þess af stað herferð gegn verðhækkunum undir yfirskriftinni –Vertu á verði. Átakið er hvatning til almennings og fyrirtækja um að taka höndum saman til að rjúfa vítahring verðbólgunnar og er liður í eftirfylgni með samkomulags ASÍ og SA við framlengingu kjarasamninga í upphafi árs. Hugmyndin var fyrst og fremst að vekja fólk til meðvitundar um verðlagsmál og virkja almenning í að vekja athygli samborgaranna á óeðlilegum hækkunum á vörum og þjónustu. Það skapar umræður og mikilvægt aðhald gagnvart kaupmönnum og þjónustuaðilum.

Átakið hefur hlotið góðar viðtökur og heimasíðan www.vertuaverdi.is verið ágætlega sótt. Auglýsingar í nafni aðildarfélaganna hafa verið birtar í útvarpi og skjáauglýsingum í sjónvarpi auk auglýsinga á helstu vefmiðlum. Um miðjan október sl. höfðu um 450 athugasemdir verið settar inn á síðuna og um 47.000 manns heimsótt hana. Athygli vekur að fólk dvelur fremur lengi á síðunni eða í ríflega 3 mínútur að meðaltali, sem telst gott. Það segir okkur að þeir sem heimstækja síðuna lesa þær athugasemdir sem inn koma.

Auglýsingaherferð átaksins rann sitt skeið í október en heimasíðunni verður þó að sjálfsögðu áfram í loftinu . Hreyfingin hefur auk þess stórt tengslanet til að miðla boðskapnum í gegnum t.d. heimasíður félaga og sambanda, facebook-síður, félagsblöð, fundi og námsskeið.

Það er full ástæða til að hvetja félagsmenn til að vera áfram á verði, verðbólgan er á fullri ferð og ekki útlit fyrir að neitt lát sé á. Reykjavíkurborg hefur þegar gefið tóninn með boðuðum gjaldskrárhækkunum og eins og áður er hætt við að í kjölfar kjarasamninga noti fyrirtækin launahækkanir sem skálkaskjól til verðhækkana sem enginn fótur er fyrir. Áframhaldandi gott aðhald frá neytendum er því bráðnauðsynlegt.