Vert er að benda á rafrænan viðburður sem ASÍ-UNG stendur fyrir á morgun, fimmtudaginn 11. febrúar, kl. 14:00. Allir velkomnir.
Stjórn ASÍ-UNG stendur fyrir OPNUM rafrænum viðburði þar sem rætt verður um barneignir, kostnað sem fylgir, hvernig núverandi kerfi virkar og hvað má betur fara.
Hlýtt verður á erindi fagaðila og annarra áður en opnað verður fyrir spurningar.
Boðið verður upp á þýðingu á ensku.