ASÍ-UNG þing næsta föstudag

Þriðja þing ASÍ-UNG verður haldið föstudaginn 12. september nk. undir yfirskriftinni „Samfélag fyrir alla... líka unga fólkið“. Öll aðildarfélög ASÍ, rúmlega fimmtíu talsins, hafa rétt til að senda fulltrúa á þingið. Tveir fulltrúar frá Einingu-Iðju munu sitja þingið fyrir hönd félagsins, þau Ingimundur Norðfjörð og Hildigunnur Sigðurðardóttir.

ASÍ-UNG er vettvangur fyrir fólk á aldrinum 16-35 ára til að láta rödd sína heyrast innan verkalýðshreyfingarinnar. Á þeim aldri er ungt fólk að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaðnum, öðlast mikilvæga starfsreynslu, stofna fjölskyldur og kaupa íbúðarhúsnæði svo eitthvað sé nefnt.

Meðal helstu verkefna ASÍ–UNG er að kynna ungu fólki á vinnumarkaði réttindi þeirra og skyldur og starfsemi stéttarfélaganna. Þá er ASÍ-UNG ætlað að tryggja að hugað sé að stöðu og hagsmunum ungs launafólks í stefnu verkalýðshreyfingarinnar og að rödd unga fólksins heyrist í starfi og stefnumótun stéttarfélaganna.

Dagskrá þingsins