Fyrsta þing ASÍ-UNG, eftir stofnþingið í maí 2011, verður haldið föstudaginn 14. september nk. í Reykjavík. Helsta umfjöllunarefni þingsins eru húsnæðismál ungs fólks en mjög hefur þrengt að möguleikum ungs fólks til kaupa á sinni fyrstu íbúð eftir hrunið 2008. Má færa fyrir því rök að staða ungs fólks til íbúðarkaupa hafi ekki verið þrengri í áratugi. Á þinginu verður einnig fjallað um leigumarkaðinn og það óöryggi og háa verð sem leigjendur þurfa að búa við.
Öll aðildarfélögin 51 innan ASÍ eiga rétt á að senda fulltrúa á þingið sem er ætlað ungu fólki á aldrinum 18 - 35 ára.
Nánari upplýsingar um þingið má sjá hér.