ASÍ-UNG kallar eftir aðgerðum í loftslagsmálum í tengslum við alþjóðlega loftslagsaðgerðaviku, 20. - 27. september 2019
Áskorun frá ASÍ-UNG og Evrópusambandi verkalýðsfélaga/ETUC
ASÍ-UNG skorar á aðildarfélög ASÍ til að grípa til aðgerða vegna hamfarahlýnunar í tengslum við alþjóðlegu viku loftslagsaðgerða frá 20. - 27. september. Heimsátakið er skipulagt vegna umhverfisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem haldinn verður í New York þann 23. september.
Á þingi ETUC fyrr á þessu ári í Vín var samþykkt ályktun um mikilvægi þess að virkja stéttarfélög og félagsmenn til aðgerða næstu fjögur árin vegna hamfarahlýnunar af mannavöldum. Í aðgerðaáætlun ETUC 2019-2023 skuldbinda samtökin sig til að vinna markvisst að róttækum loftslagsaðgerðum.
Á undanförnum misserum höfum við meðal annars upplifað fordæmalausa skógarelda í Amazon og Síberíu, bráðnun jökla á norðurslóðum, banvæna monsúnvinda á Indlandi og hitabylgjur um alla Evrópu. Þetta hefur allt haft mikil áhrif á líf og störf fólks.
Allt síðasta ár hefur ungt fólk vakið athygli á þeirri vá sem hamfarahlýnun af mannavöldum er með vikulegum loftlagsverkföllum þar sem krafist er aukinna aðgerða stjórnvalda í loftlagsmálum.
Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna svarar ákalli unga fólksins og hefur boðað leiðtoga heims til loftlagsráðstefnu í New York. Af því tilefni hvetur unglingahreyfingin til loftlagsverkfalla og vitundarvakningar vikuna 20. - 27. september. Lesa má nánar um átakið hér.
Við hvetjum aðildarfélög til þess að vera virk í baráttunni gegn hamfarahlýnun og standa vörð um félagslegt réttlæti (e. Just Transition) í þeim breytingum sem fram undan eru á vinnumarkaði.
ASÍ-UNG hvetur öll aðildarfélög ASÍ til þess að taka virkan þátt í aðgerðavikunni 20.-27. september. Loftslagsverkfall – Ísland hefur meðal annars boðað til loftlagsverkfalls á föstudaginn kemur, 20. september. Á Facebook síðu þeirra má svo einnig sjá lista fyrir fjölda annarra viðburða sem skipulagðir hafa verið í tengslum við aðgerðavikuna.
Sýnum samstöðu gegn hamfarahlýnun af mannavöldum!
Stjórn ASÍ-UNG