Á nýafstöðnu þingi ASÍ-UNG mátti greina mikinn samhug og baráttuvilja hjá ungu fólki innan verkalýðshreyfingarinnar. Málþing um hlutverk stéttarfélaga og þær áherslur sem ungt fólk vill sjá í komandi kjarasamningum bar einna hæst á þinginu.
Meðfylgjandi ályktun var samþykkt í lok þingsins en hún sýnir ágætlega hvar áherslur ungs fólks innan verkalýðshreyfingarinnar liggja í komandi kjaraviðræðum.
Fimmta þing ASÍ-UNG var haldið föstudaginn 14. september. ASÍ-UNG eru samtök ungs fólks á aldrinum 16-35 ára, innan verkalýðshreyfingarinnar sem sér til þess að hagsmunamál ungs fólks á vinnumarkaði séu ávallt á dagskrá Alþýðusambandsins.
Eins og fyrr segir var málþing um hlutverk stéttarfélaga og þær áherslur sem ungt fólk vill sjá í komandi kjarasamningum einn af hápunktum þingsins. Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, fluttu erindi og tóku svo þátt í pallborðsumræðum ásamt tveimur stjórnarmönnum ASÍ-UNG, Eiríki Þór Theódórssyni og Hafdísi Ernu Ásbjarnardóttur. Miklar umræður sköpuðust varðandi stöðu ungs fólks á vinnumarkaði og er ljóst að fulltrúum finnst að víða megi gera betur til að styrkja stöðu þessa hóps.
Ný stjórn var kosin til starfa þar sem lögð var áhersla á jafna skiptingu út frá kyni, búsetu og félögum. Nýja stjórn ASÍ-UNG skipa:
Aðalstjórn:
Alma Pálmadóttir, Efling
Gundega Jaunlina, Hlíf
Karen Birna Ómarsdóttir, Aldan
Margret Júlía Óladóttir, FVSA
Eiríkur Þór Theodórsson, Stétt Vest
Sindri Már Smárason, Afl
Ástþór Jón Tryggvason, VLFS
Aðalbjörn Jóhannsson, Framsýn
Margrét Arnarsdóttir, FÍR
Varastjórn:
Kristinn Örn Arnarson, Efling
Ólafur Ólafsson, Eining Iðja
Hafdís Erna Ásbjarnardóttir, Einingu Iðja
Birkir Snær Guðjónsson, Afl
Elín Ósk Sigurðardóttir, Stétt Vest