ASÍ-UNG ályktar - Ekkert um okkur án okkar!

Stjórn ASÍ-UNG hafnar alfarið órökstuddri aldursbundinni mismunun og ætlast til þess að byrjunarlaun miðist við 16 ára aldur. Í núverandi kjarasamningum Sam­taka at­vinnu­lífs­ins við stéttarfélög verkafólks og verslunarmanna (innan ASÍ) er kveðið á um að starfs­menn undir 20 ára séu á lægri taxtalaunum en þeir sem eldri eru. 

Stjórn ASÍ-UNG telur óheimilt að mismuna einstaklingum sem sinna sömu eða jafnverðmætum störfum vegna aldurs.

ASÍ-UNG krefst þess að Samtök atvinnulífsins færi byrjunarþrepið niður í 16 ár og gæti þannig jafnræðis á vinnumarkaði.