Á vef ASÍ er sagt frá því að verkefnisstjórn um framtíðarskipan
húsnæðismála hafi skilaði skýrslu sinni og tillögum í vikunni. "Hún leggur til að hér verði tekið upp nýtt
húsnæðislánakerfi að danskri fyrirmynd, þar sem gætt er betra jafnræðis milli lántakenda og fjárfesta í lánaflokkum sem
í ríkara mæli byggja á föstum óverðtryggðum vöxtum. Jafnframt leggur verkefnisstjórnin til að staðinn verði vörður um
framtíðarhlutverk Íbúðalánasjóðs í nýja lánakerfinu. Hann verði ein af þeim húsnæðislánastofnunum
sem hér starfi á lánamarkaði og verði áfram í eigu ríkisins. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, fagnar þessari
niðurstöðu enda er með þessu að flestu leiti tekið undir tillögur ASÍ varðandi húsnæðislánakerfið sem kynntar voru fyrir
rúmu ári síðan.
Þegar kemur að umfjöllun um þarfir og vanda þeirra tekjulægstu í samfélaginu, og sýnilega eru í mestum húsnæðisvanda,
er ljóst að verkefnisstjórnin skilar auðu. Þetta telur forseti ASÍ algerlega óforsvaranlegt. Engar tillögur er að finna um það með
hvaða hætti stjórnvöld ætli að koma til móts við gríðarlegan vanda þessa fólks sem þarf að nota allt að helming tekna
sinna til að borga fyrir húsnæði. Skýtur þetta nokkur skökku við í ljósi þess að ASÍ setti nýlega fram
ítarlegar og útfærðar tillögur að nýju félagslegu húsnæðisleigukerfi, sem skilað gæti þeim árangri að
tryggja tekjulægstu þjóðfélagshópunum aðgang að húsnæði á viðráðanlegum kjörum."