Ný skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir Alþýðusamband Íslands sýnir að 83% Íslendinga eru hlynntir því að launafólk með heildartekjur undir 500 þús. kr. á mánuði fyrir skatt, fái meiri skattalækkun en aðrir. Athygli vekur að stuðningur við slíka skattkerfisbreytingu er mikill í öllum aldurs- og tekjuhópum þó vissulega sé hann mestur hjá þeim tekjulægstu.
Þessi niðurstaða rímar vel við þær hugmyndir um skattkerfisbreytingar sem ASÍ kynnti í lok janúar. Markmið þeirra tillagna var að létta byrðum af fólki með lágar- og millitekjur, auka jafnrétti og koma á sanngjarnri skattheimtu. Þegar ríkisstjórnin kynnti sínar skattalækkunar hugmyndir nokkrum vikum seinna kom í ljós að sama skattalækkun átti að ganga upp allan tekjustigann, þ.e. það skipti ekki máli hvort einstaklingurinn væri með 300 þús kr. eða 2,3 milljónir í mánaðartekjur, allir fengju það sama.
Rannsókn hagdeildar ASÍ frá 2017 sýnir að skattbyrði hinna tekjulægstu hefur hækkað mest á undanförnum árum og dregið hefur úr jöfnunarhlutverki skattkerfisins. Munar þar mestu að skattleysismörk hafa ekki fylgt launaþróun og vaxta- og barnbótakerfin hafa markvisst verið veikt og eru nú í skötulíki miðað við það sem áður var.
Könnun Gallup var gerð 1. - 12. mars 2019. Um netkönnuna var að ræða og var úrtakið 1440 manns af landinu öllu. Svarhlutfall var 57,1%.