ASÍ: Hæstiréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur

Þann 12.nóvember sl. var viðurkenningarmáli ASÍ gegn íslenska ríkinu vegna skattlagningar á almennu lífeyrissjóðina vísað frá héraðsdómi en málið höfðaði ASÍ til gæslu hagsmuna allra félagsmanna sinna. Sá úrskurður var kærður til Hæstaréttar þann 21. nóvember sl. Hæstiréttur hefur nú staðfest úrskurð héraðsdóms. ASÍ undirbýr nú málssókn með breyttri aðild gegn ríkinu til endurgreiðslu skattsins.

Þrátt fyrir vafa um það í upphafi, hvort þvinga mætti fram efnisdóm í viðurkenningarmáli sem ASÍ myndi höfða vegna álagningar skatta á lífeyrissjóði á samningssviði sínu var ákveðið að láta á slíka aðild reyna. Niðurstaðan liggur fyrir og lengra verður ekki komist með þeim hætti. Áður en málið var þingfest í héraðsdómi hafði þegar verið tekin ákvörðun um að ASÍ myndi f.h. tiltekins lífeyrissjóðs höfða mál á sömu efnisforsendum til endurgreiðslu hins álagða skatts þ.e. þar sem álagningin hefði brotið gegn ákvæðum stjórnarskrár. Til þess að undirbyggja þá málshöfðun greiddu allir almennu lífeyrissjóðirnir skattinn með fyrirvara um lögmæti hans. Unnið er nú að slíkri málssókn.