ASÍ fagnar 97 ára afmæli í dag

Alþýðusamband Íslands fagnar 97 ára afmæli sínu í dag en sambandið var stofnað 12. mars 1916. En ASÍ fagnar ekki bara háum aldri í dag því saga sambandsins kemur jafnframt út í dag. Verkið, sem er í tveimur bindum og afar veglegt, hefur verið í smíðum undanfarin ár en höfundur þess er Sumarliði Ísleifsson sagnfræðingur.

Bókagjöf
Nýlega ákvað stjórn Einingar-Iðju að færa öllum bókasöfnum á félagssvæðinu þessa sögu ASÍ að gjöf. Fljótlega verða kallaðir saman fulltrúar frá öllum þessum söfnum, sem eru 33 að tölu, og þeim afhent þetta ritverk.

Nánar um söguna
Verkið hefur átt sér langan aðdraganda og mikil og vönduð undirbúningsvinna hefur verið unnin sem skilar sér í metnaðarfullu og glæsilegu riti um íslenskt samfélag og sögu, frá fyrstu tilraunum til stofnunar alþýðusamtaka gegnum hörð stéttaátök kreppuáranna, samfélagsbreytingar á eftirstríðsárum, alþýðutryggingar, húsnæðismál, jafnréttismál, lífeyrisréttindi, menntamál, alþjóðamál og ótalmargt annað sem íslensk alþýðusamtök komu að, og allt til nútímans. Fyrra bindið ber undirtitilinn Í samtök og nær yfir tímabilið 1916-1960 og hið síðara kallast Til velferðar og nær frá 1960-2010.

Í bókunum er að finna mörg hundruð myndir sem tengjast íslenskri verkalýðsbaráttu og alþýðusamtökum og var víða leitað fanga við öflun mynda, enda er þar margt afar forvitnilegt að sjá. Einnig eru í bókinni skýringarmyndir og töflur sem segja sögu þróunar í kjaramálum og á mörgum öðrum sviðum, listar yfir stór og smá aðildarfélög ASÍ frá upphafi, litmyndir af öllum þekktum 1. maí-merkjum samtakanna og margt annað efni sem styður og skreytir frásögnina.

Bækurnar eru samtals nær 800 blaðsíður í stóru broti og eru bæði fáanlegar í vandaðri öskju og einnig án öskju.