ASÍ boðar til formannafundar 15. júní

Miðstjórn ASÍ hefur ákveðið að kallað verði til formannafundar ASÍ þann 15. júní nk. til að ræða mál sem hafa verið mikið í umræðunni innan hreyfingarinnar á síðustu mánuðum. Fundurinn fer fram Hilton hóteli í Reykjavík og hefst kl. 11:00. 

Á formannafundum eiga sæti formenn allra aðildarfélaga ASÍ, formenn aðildardeilda einstakra sambanda, forseti og varaforsetar ASÍ, þeir miðstjórnarmenn (aðal- og varamenn) sem ekki eru formenn aðildarfélaga eða aðildardeilda auk formanns ASÍ – UNG. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju og SGS, mun sitja fundinn fyrir hönd félagsins.

Dagskrá

  1. Ávarp forseta ASÍ
  2. Yfirlýsing um stuðning stjórnvalda við lífskjarasamninginn – staða mála
  3. Gul stéttarfélög og staða verkalýðshreyfingarinnar
  4. Starfsemi skrifstofu ASÍ – skipurit og breytingar
  5. Önnur mál

12:30 Hádegisverður

13:00 Dagskrá framhaldið
16:00 Áætluð fundarlok